Um okkur

Um okkur

Okkar saga í stuttu máli.

Hjá Snæfells Kayak Adventure trúum við því að bestu upplifanirnar verði til þegar öryggi, náttúra og persónuleg þjónusta fara saman.
Við erum heimafólk á Snæfellsnesi og þekkjum svæðið út og inn. Þess vegna veljum við ávallt bestu staðsetninguna hverju sinni út frá veðri og sjólagi. Þannig færð þú ekki aðeins öruggari ferð heldur einnig sem besta upplifun af stórbrotinni náttúru Snæfellsness.
Við leggjum áherslu á litla hópa þar sem hver gestur fær persónulega leiðsögn, góðan tíma og notalega stemningu. Hvort sem þú ert að stíga í kajak í fyrsta sinn eða hefur mikla reynslu, leggjum við okkur fram um að þú farir heim með einstakar minningar og aukið sjálfstraust á sjónum.
Fyrir okkur snýst þetta ekki bara um kajak. Þetta snýst um að skapa tengingu við náttúruna, njóta augnabliksins og deila þeirri fegurð sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða.
Komdu með okkur á sjó og upplifðu Snæfellsnes eins og heimamenn þekkja það.

Mynd

Teymið

Fólkið á bak við þjónustuna

Dóra Unnars

Eigandi - Leiðsögumaður - Hópeflistjórnandi

Dóra er heimamaður í húð og hár með djúpa ástríðu fyrir sjónum og náttúru Snæfellsness. Hún er menntaður tómstunda- og félagsmálafræðingur, skipstjóri og leiðsögumaður sem hefur brennandi áhuga á að skapa eftirminnilegar upplifanir. Hópefli, öryggi og persónuleg þjónusta eru hennar hjartans mál og hún leggur metnað sinn í að hver ferð verði bæði skemmtileg og ógleymanleg.

Aðalsteinn Bjarkason

Eigandi - Leiðsögumaður - Búnaðarstjóri

Alli er mikill útivistarmaður sem nýtur þess að vera úti í náttúrunni, hvort sem það er á kajak, hjóli eða í gönguferðum um fallegt landslag Snæfellsness. Hann hefur mikla ástríðu fyrir leiðsögumannastarfinu og hefur sérstaklega gaman af því að deila náttúruupplifun sinni með öðrum. Með jákvæðu viðmóti, góðri nærveru og ríkri þjónustulund leggur Alli metnað sinn í að hver gestur njóti öruggrar, skemmtilegrar og eftirminnilegrar upplifunar.