Ferðir

Allar ferðir okkar

Ferðir

Um ferðir okkar

Hvort sem þú ert að leita að rólegri náttúruupplifun, spennandi kajakævintýri eða skemmtilegri hópeflisferð bjóðum við upp á fjölbreytt úrval ferða fyrir alla. Hver ferð er einstök og leiðir þig um stórbrotna náttúru Snæfellsness með öryggi, persónulegri leiðsögn og ógleymanlegri upplifun að leiðarljósi.
Veldu þá upplifun sem hentar þér best og komdu með okkur í ævintýri á sjó.

Kayakróður frá Snæfellsbæ

Upplifðu Snæfellsnes frá sjónum í leiðsagðri kajakferð sem hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja öðlast meira öryggi á kajak. Við kennum helstu grunnatriði, róðrartækni og stjórnun kajaks áður en lagt er af stað.
Brottfararstaður er valinn eftir veðri og óskum hópsins. Hægt er að leggja af stað frá Ólafsvík, Rifi, Hellissandi þar sem hver staður býður upp á sína einstöku náttúru og upplifun.
Lærðu, róðu og njóttu stórbrotinnar náttúru Snæfellsness með öruggri leiðsögn og persónulegri þjónustu.

1,5 klst.📍 Snæfellsbæ
  • Hentar öllum
  • Stórbrotin náttúra
  • Öryggi í fyrirrúmi
  • Sveigjanleg brottför

9.900 kr.pr. mann

Kvöldróður við Krossavík

Upplifðu stórbrotna náttúru Snæfellsness frá sjónum í ógleymanlegri kajakferð um fallegu Krossavík. Róðu meðfram hrikalegri strandlengju, skoðaðu klettamyndanir, njóttu kyrrðarinnar og fylgstu með selum og fjölbreyttu fuglalífi í sínu náttúrulega umhverfi.Ferðin hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa reynslu af kajakróðri. Leiðsögumenn okkar sjá um kennslu og öryggisleiðbeiningar áður en lagt er af stað, þannig að þú getur notið upplifunarinnar af öryggi og með sjálfstrausti.
Við hjá Snæfells Kayak Adventure bjóðum upp á litla hópa, persónulega þjónustu og einstaka náttúruupplifun sem þú munt seint gleyma.
Komdu með okkur á sjó og upplifðu Snæfellsnes frá nýju sjónarhorni!

1,5 klst.📍 Hellissandi
  • Öryggi í fyrirrúmi
  • Heitt súkkulaði
  • Róleg og friðsæl sigling
  • Öryggi í fyrirrúmi

Frá 12.900 kr.pr. mann

Snæfells kayak Adventure

Arnarstapahringur með leiðsögn

Upplifðu stórbrotna strandlengju Arnarstapa úr kajak og sjáðu eitt fallegasta svæði Snæfellsness frá einstöku sjónarhorni. Róðu meðfram hrikalegum klettum, náttúrulegum steinbogum og glæsilegum basaltmyndunum þar sem hafið hefur mótað landslagið í þúsundir ára.Á leiðinni gefst tækifæri til að fylgjast með fjölbreyttu fuglalífi og njóta stórfenglegs útsýnis yfir Snæfellsjökul og hafið. Leiðsögumenn okkar segja frá náttúru, sögu og sérkennum svæðisins á meðan þú nýtur kyrrðarinnar á sjónum.
Ferðin hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa reynslu af kajakróðri. Öll kennsla, öryggisleiðbeiningar og nauðsynlegur búnaður eru innifalin.
Komdu með okkur í ógleymanlega kajakferð og upplifðu Arnarstapa frá hlið sem fáir fá að sjá!

10 2,5 - 3 klst.📍 Arnastapi
  • Stórbrotin klettamyndun
  • Fjölbreytt fuglalíf
  • Einstakt útsýni frá sjónum

Frá 17.900 kr.pr. mann

Kajakferð um Skarðsvík

Upplifðu eina fallegustu strönd Íslands frá einstöku sjónarhorni í leiðsagðri kajakferð um Skarðsvík. Róðu yfir kristaltæran sjó, með gyllta sandströndina, hrikalega kletta og stórbrotið landslag Snæfellsness allt í kring.
Ferðin hentar bæði byrjendum og reyndum kajakræðurum. Leiðsögumenn okkar kenna helstu grunnatriði kajakróðurs og sjá til þess að þú njótir upplifunarinnar á öruggan og skemmtilegan hátt.Á sjónum gefst tækifæri til að njóta kyrrðarinnar, skoða einstaka strandlengju og upplifa náttúru Snæfellsness á þann hátt sem aðeins kajak getur boðið upp á.
Komdu með í ógleymanlegt kajakævintýri og uppgötvaðu töfra Skarðsvíkur frá sjónum.

1,5 - 2 klst.📍 Skarðsvík

12.900 kr. pr. mann

Snæfells kayak Adventure

Hópefli

Styrkið samvinnu, samskipti og traust innan hópsins með skemmtilegri og eftirminnilegri upplifun í einstöku umhverfi Snæfellsness.Dagskráin sameinar stutt námskeið með fjölbreyttum hópeflisverkefnum á sjó og landi. Með einföldum en skemmtilegum þrautum vinna þátttakendur saman að því að efla traust, samskipti, lausnamiðaða hugsun og liðsheild – allt í afslöppuðu og hvetjandi umhverfi.
Frábær upplifun fyrir vinnustaði, hópa og fyrirtæki sem vilja efla liðsheild og skapa sameiginlegar minningar.

2 -4 klst.📍 Snæfellsbæ
  • Sérsniðin dagskrá
  • Hópefli og öryggi
  • Sameiginleg markmið
  • Eldur, drykkir og kósýheitin í lokinn

Verð eftir hóp

Leiga á bát og búnaði

Bátar og búnaður til leigu fyrir einkaferðir með skýrum leiðbeiningum um öryggi. Hafðu sambandi og við ákveðum afhendingu.

2 klst.

6900 kr.pr. bát